|
Góð ráð til kórsöngvara til að láta stjórnanda halda vöku sinni
4. ráð af 10
1. Verið aldrei sátt við hvernig stjórnandinn gefur tóninn.
Ef hann notar tónkvísl eða eigin tónvísi skal heimta tóninn frá hljóðfæri og öfugt ef hann gefur tóninn frá hljóðfæri.
2. Kvartið yfir hitanum í æfingarsalnum, lýsingu, þrengslum, trekk, vondum stólum o.s.frv.
Best er að gera þetta þegar stjórnandinn er stressaður.
3. Grúfið ykkur ofan í nóturnar rétt áður en stjórnandinn gefur inn í lagið.
4. Heimtið að fá að breyta uppröðun kórsins, búningum, eða efnisvali.
Stundið þetta að staðaldri.
Gefið í skyn að þið séuð að hætta og látið stjórnandann vita af því að þið eruð bara að gera honum persónulegan greiða með því að syngja í kórnum.
Einn góður frá Rúnu:
Örlög á umferðareyju
Eins og svo oft áður voru tveir einstaklingar að aka bílum sínum.
Þarna var um að ræða konu og mann. Slysin gera ekki boð á undan
sér eins og í þessu tilfelli en bílar þeirra skullu skyndilega
saman á hraðbraut einni í útlöndum. Lánið lék við þau en þau
sluppu ómeidd eftir þennan annars harða árekstur. Konan rankar við
sér felmtri slegin, skríður úr bíl sínum og segir:
"Svo, þú ert þá karlmaður, en spennandi. Og ég er kona. Vá, sjáðu
bílana okkar! Þeir eru gjörsamlega í klessu, en sem betur fer
slösuðumst við nú ekkert. Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði um að
okkur sé ætlað að hittast aftur, vera vinir og búa saman í friði
til æviloka."
Upp með sér stamar maðurinn loks út út sér: "Ó,já, ég er þér alveg hjartanlega sammála!"
"Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði!" hélt konan áfram, ég meina
sjáðu, þetta er annað kraftaverk. Bíllinn minn er algjörlega í
klessu en þessi vínflaska brotnaði ekki. Guð vill örugglega að við
drekkum þetta vín og höldum þannig upp á heppni okkar og yndislega
sameiginlega framtíð sem við eigum í vændum."
Síðan réttir hún manninum flöskuna. Hann kinkar kolli til
samþykkis, opnar flöskuna og drekkur hana hálfa og réttir síðan
konunni. Konan tekur flöskuna, setur tappann í og réttir manninum
hana aftur.
Maðurinn spyr: "Ætlar þú ekki að fá þér?" Konan svarar: "Nei. Ég held ég bíði bara eftir lögreglunni..."
BOÐSKAPUR SÖGUNNAR: Konur eru MJÖG skarpar. Ekki abbast upp á þær.
|