English

Um Kórinn
Á döfinni
Útgáfa
Tengiliðir
Félagar
Myndasíðan
Sagan
Til kórfélaga
Bros vikunnar

 

 

  

 

 

 

 

Vika 6

Góð ráð til kórsöngvara til að láta stjórnanda halda vöku sinni
3. ráð af 10

3. Grúfið ykkur ofan í nóturnar rétt áður en stjórnandinn gefur inn í lagið.

Einn góður frá Rúnu:

Sjómannskona fór í IKEA og keypti sér fataskáp í svefnherbergið, stuttu eftir að maður hennar fór á sjóinn.
Skápurinn var ósamsettur og átti að vera auðveldur í uppsetningu. Hún fór með hann heim og byrjaði að púsla honum saman um morguninn. Því var lokið um hádegið og var konan nokkuð stolt af árangrinum. Þegar hún er að virða fyrir sér skápinn, dettur hann allt í einu í sundur.
Þetta þykir konunni skrýtið og setur skápinn aftur saman. Þegar hún er búin að því keyrir strætó framhjá og skápurinn hrynur enn.
Nú er henni allri lokið, svo hún bara fer í IKEA og kvartar en þeir höfðu aldrei heyrt annað eins og ákveða að senda mann morguninn eftir til þess að sjá þetta.

IKEA-maðurinn kemur og setur saman skápinn, þau bíða eftir strætó og þegar hann keyrir framhjá, hrynur skápurinn.
Maðurinn er mjög hissa á þessu og setur skápinn saman aftur og segir við konuna að hann verði að fara inn í skápinn og sjá hvað væri að gerast, fer svo inn í skápinn og bíður.

Þá kemur eiginmaðurinn óvænt heim og fer inn í svefnherbergið til konu sinnar, sem starir á skápinn.
„Hvað, ertu búin að kaupa skáp?"
segir eiginmaðurinn og opnar hann. Honum bregður, þegar hann sér manninn í skápnum og spyr hvern andskotan hann sé að gera þarna?
„Þú trúir því aldrei," sagði IKEA-maðurinn, „en ég er að bíða eftir strætó!"

 

 

 

kor(hjá)kor.is

 

 

 

 

Nýjast