|
HRÓLFUR OG ERLA
Hrólfur og Erla voru vistmenn á geðsjúkrahúsi. Dag einn, er þau
voru á gangi við sundlaugina kastaði Hrólfur sér útí og sökk til
botns. Erla stakk sér útí laugina og bjargaði Hrólfi frá drukknun.
Þegar yfirlæknirinn frétti af björgunarafreki Erlu ákvað hann að
útskrifa hana af sjúkrahúsinu, þar sem hún væri greinilega búin að ná snerpu
og andlegu jafnvægi á ný.
Daginn eftir fór hann til fundar við Erlu til að boða henni
fréttirnar og sagði þá;
"Erla mín, ég hef bæði góðar og slæmar fréttir að færa þér!
Góða fréttin er að ég ætla að útskrifa þig af spítalanum þar sem þú
hefur sýnt merki um bata, sem sýnir sig í því að þú bjargaðir honum Hrólfi
frá drukknun. Slæma fréttin er hins vegar sú að hann Hrólfur er dáinn.
Karlgreyið hengdi sig í beltinu sínu í gærkvöldi eftir að þú hafðir
bjargað honum.?"
Þá sagði Erla;
"Hrólfur hengdi sig ekki. Ég festi hann upp til
þerris í gærkvöldi.
En hvenær má ég fara heim sagðirðu??"
|