|
Miðaldra
maður í Ameríku keypti sér nýjan Mercedes til að
halda uppá það að konan hans fór frá honum.
Fór
svo í bíltúr um kvöldið til að sýna sig og sjá aðra. Topp lúgan var dregin niður og vindurinn blés í þær hárlýjur
sem ennþá prýddu höfuð hans.
Hann
gaf hressilega í og þegar hraðamælirinn sýndi 180 sá
hann skyndilega að baki sér lögguna með blikkandi ljósin.
Hmrmff...
þeir ná mér aldrei á Mercedes Bens og hann gaf í...
og gaf aftur í... Þá tók skynsemin völdin og hann sagði við sjálfan sig
"Hvað er eiginlega að mér?"...hægði á og
keyrði út í vegarkantinn.
Löggan
kom að honum leit á ökuskírteinið og grandskoðaði bílinn:
"Þetta
hefur verið langur vinnudagur" sagði hann "ég
er að ljúka vaktinni og það er föstudagurinn 13. Ég
nenni ekki meiri
pappírsvinnu, og hef engan áhuga á yfirvinnu, - ég gef
þér séns. Ef
þú getur komið með góða afsökun fyrir þessum
ofsahraða sem þú fórst á, betri en ég hef nokkru
sinni heyrt, þá læt ég þig sleppa í þetta
sinn"
Kallinn
hugsaði sig um nokkra stund
og segir loks: "Kellingin stakk af fyrir
nokkrum dögum með lögreglumanni. Ég var skal ég segja þér svo hræddur um að þú værir
að skila henni"
"Góða
helgi" sagði löggan
|