|
Þessi jólasaga er
ritgerð eftir barn í grunnskóla og er um Jesús frá
sjónarhóli
barna.
Sá sem hefur orðið frægastur úr
Biblíunni er Jesús. Hann var frá
Nazaret í Egyptalandi. Hann fæddist
á jólanótt í fjósi, vegna þess
að öll hótel voru full. Mamma hans hét María og
stjúppabbi hans Jósef. Hann
var ekki raunverulegur pabbi Jesú, því María var
áður gift
einhverjum Gabríel, en hann var floginn í burtu.
Þegar
Jesús var nýfæddur áttu þrír
jólaveinar leið fram hjá fjósinu og þegar
þeir sáu litla barnið, náðu þeir í nokkrar
jólagjafir og reykelsi handa
hjónunum, en það veitti sannarlega ekki af þar sem
þau höfðu ferðast allan daginn á asna,
af því að það átti að telja
þau.
Jesús var ekki skírður fyrr en
seinna, því í þá daga voru börnin
ekki skírð fyrr en þau voru orðin
fullorðin og höfðu lært að synda,
því þau voru nefnilega alveg færð í kaf.
Þegar Jesús varð
átta ára gaf
pabbi hans honum Biblíu, og þegar hann var tólf ára
kunni hann hana
utan að, og það var vel af sér vikið, því í þá
daga var Biblían svo stór að
það varð að vefja hana upp á kefli. Hann var
líka duglegur að læra sálma.
Hann gat galdrað
þegar hann var bara smá
strákur. Hann var reyndar mesti galdramaður sem
uppi hefur verið.
Jesús var mjög sérstakur.
Hann gekk um og lagði gátur fyrir
fólk sem það átti
að reyna að leysa, en það tókst sjaldan. Hann
gat líka gengið í gegnum vatn og
eld, án þess að það kæmi við hann. Hann
gat líka gengið á vatninu. Það var á
Genezaretvatni, þar sem hann
gekk út að fiskibáti til kaupa fisk. Pabbi minn
segir að það hafi
verið ís á vatninu, en hann trúir heldur ekki á Guð
og Jesú.
Jesús gerði líka
mikið fyrir umferðina. Einu sinni þegar hann
var á gangi í
Jerúsalem, mætti hann lömuðum manni sem lá í rúminu
sínu úti á miðri
götu, Jesús sagði ; Tak sæng þína og gakk.
Maðurinn gerði
það og þá gátu bílarnir aftur komist leiðar sinnar.
Svo var það
ekkja sem átti son, en ég bara skil ekki hvernig hún
gat átt hann fyrst hún var
ekkja. Jesús tók son ekkjunnar í kraftaverkameðferð
og við það varð hann mjög vitur, sagði fólk.
Eitt af því merkilegasta sem
Jesús gerði var að stjórna
borðhaldinu í
eyðimörkinni. Það var þegar þessar 5 þúsund
manneskjur stóðu aleinar úti í
eyðimörkinni án þess að eiga vott né þurrt.
Þá gerði Jesús
kraftaverk og allir fóru saddir í rúmið. Jesús gat
ekki allaf komið fram í eigin
persónu. Stundum var hann dulbúinn sem hirðir,
og einu sinni kom hann fram undir fölsku nafni.
|