|
Hvað gerir
þú við tímann?
Ég lifi góðu
lífi, sagði fiskimaðurinn. Ég sef frameftir á
morgnana, fiska dálítið, leik mér við börnin mín,
tek "siesta" með konunni, rölti niður
í þorpið á kvöldin og fæ mér vínglas og leik á
gítar með vinum mínum.
Ég get gefið þér
góð ráð sagði Reykvíkingurinn. Ég er ráðgjafi
með MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Þú
átt að veiða meira. Þá færð þú meiri afla
og getur keypt þér stærri bát og þá veiðir þú enn
meira. Síðan getur þú keypt heilan flota af bátum og
þá ertu ekki lengur háður því að selja í gegnum
milliliði en getur verslað beint við
verksmiðjurnar, sett upp verksmiðjur og jafnvel ráðið
markaðnum. Þá þarftu ekki lengur að búa hér heldur
getur flutt suður.
Hvað tekur þetta langan
tíma? spurði fiskimaðurinn.
Svona 20-25 ár.
En hvað svo? spurði
fiskimaðurinn.
Þá kemur stóra stundin,
sjáðu til. Þú breytir fyrirtækinu í
hlutafélag og ferð á verðbréfamarkað og selur og
stendur uppi með marga milljarða.
Já, sagði fiskimaðurinn
en hvað svo?
Reykvíkingurinn varð
dálítið hugsi en sagði síðan: Þá flytur þú í
lítið fiskiþorp, sefur frameftir á morgnana, fiskar
dálítið, leikur við börnin, tekur "siesta"
með konunni, röltir á kvöldin niður í þorpið
og færð þér vínglas og leikur á gítar með vinum
þínum.!!!
|