English

Um Kórinn
Á döfinni
Útgáfa
Tengiliðir
Félagar
Myndasíðan
Sagan
Til kórfélaga
Bros vikunnar

 

 

  

 

 

 

 

Vika 44 - brandari 2

Síðasta vetur, þegar hráslagalegt hafði verið um hríð, ákváðu hjón ein að flýja vetur konung í viku og pöntuðu sér ferð suður í höf. Þannig atvikaðist að konan þurfti að fljúga degi síðar en ætlað var en eiginmaðurinn flaug á undan.

Þegar kallinn er kominn á hótelið rífur hann upp ferðatölvuna og skrifar strax bréf til konu sinnar. Ekki vildi betur til en svo að hann misritaði einn staf í netfanginu og lenti bréfið hjá ekkju einni sem nýbúinn var að jarðsetja sinn heittelskaða. 

 

Ekkjan sem rétt var búin að jafna sig eftir athöfnina, var í þann mund að líta eftir samúðarkveðjum þegar bréfið barst......

 

Þegar sonur ekkjunnar kom heim lá hún í yfirliði fyrir framan tölvuna og þetta stóð ritað á skjáinn:

 

Til: Konu minnar sem eftir var

Frá: Manninum þínum sem fór á undan

Efni: Er kominn á áfangastað

Elskan,

Er kominn heill á húfi. Er búinn að kynna mér allar aðstæður og gera allt klárt fyrir komu þína á morgun. Óska þér góðrar ferðar og bíð þín með óþreyju. 

Ástarkveðjur,

Þinn eiginmaður.

P.S. Fjandi heitt hérna niður frá

 

 

 

kor(hjá)kor.is

 

 

 

 

Nýjast