|
HVAÐ
KOSTAR HEILI????
Á spítalanum
voru ættingjarnir saman komnir á biðstofunni þar sem
einn fjölskyldumeðlimur lá mjög veikur. Loksins kom læknirinn
þreytulegur og dapur.
"Ég
er hræddur um að ég færi ykkur slæm tíðindi"
sagði hann og horfði upp á áhyggjufull andlit ættingjanna.
"Eina von ástvinar
ykkar er sú að hann fái heilaígræðslu. Þessi aðgerð
hefur ekki ennþá verið prófuð til hlítar og er mjög
áhættusöm en er jafnframt eina vonin í þessari stöðu.
Tryggingarnar greiða allan kostnað af aðgerðinni en þið
þurfið að greiða sjálf fyrir heilann". Ættingjarnir
sátuhljóðir og meltu með sér þessar fréttir. Eftir
dálítinn tíma spurði einn þeirra.
"Hvað
kostar heili?" Læknirinn svaraði strax.
"Karlmannsheili
kostar eina milljón en kvenmannsheili kostar hundrað og
fimmtíu þúsund". Allir ættingjarnir urðu frekar
vandræðalegir en karlmennirnir forðuðust að horfast
í augu við konurnar. Nokkrir gátu ekki á sér
setið og glottu og jafnvel flissuðu. Einn þeirra gat
þó ekki hamið forvitni sína og spurði þeirrar
spurningar sem öllum langaði að spyrja að.
"Af
hverju er karlmannsheilinn svona mikið dýrari"?
Læknirinn
brosti umburðarlyndur af einfeldni mannsins og útskýrði
þetta fyrir öllum hópnum.
"Þetta
er bara þetta venjulega verð sem sett er upp, við getum
ekki selt kvenmannsheila dýrari en þetta því þeir eru
notaðir"!!!
|