|
Tveir
sveitalubbar, Jói og Siggi, sáu að þeir voru komnir á
endastöð í lífinu og ákváðu að fara í skóla til
að komast eitthvað áfram. Þeir byrja á því að fara
til námsráðgjafa og Jói fer inn fyrstur.
Námsráðgjafinn
ráðleggur Jóa að taka stærðfræði, sögu og rökfræði.
"Hvað
er rökfræði?" spyr Jói.
Námsráðgjafinn
svarar: "Leyfðu mér að koma með dæmi. Áttu sláttuvél?"
"Hana
á ég," svarar Jói.
"Þá
geri ég ráð fyrir; og nota rökfræði, að þú eigir
garð," svarar námsráðgjafinn.
"Mjög
gott," segir Jói hrifinn.
Námsráðgjafinn
hélt áfram, "rökfræðin segir mér líka, að
fyrst þú átt garð, þá áttu líka hús."
Yfir
sig hrifinn hrópar Jói: "FRÁBÆRT!"
"Og
fyrst þú átt hús, þá má jafnvel giska á að þú
eigir konu."
"Hana
Mæju! Þetta er ótrúlegt!"
"Og
að lokum, fyrst þú átt konu, þá er rökrétt að
gera ráð fyrir að þú sért gagnkynhneigður,"
segir námsráðgjafinn.
"Það
er alveg hárrétt! Þetta er það magnaðasta sem ég
hef nokkurn tíma heyrt! Ég get ekki beðið eftir að
byrja í rökfræði."
Að
því búnu fer Jói fram þar sem Siggi bíður ennþá.
"Hvaða
fög tekurðu?" spyr Siggi.
"Stærðfræði,
sögu og rökfræði," svarar Jói.
"Hvað
í veröldinni er rökfræði?" spyr Siggi.
"Leyfðu
mér að koma með dæmi. Áttu sláttuvél?" spyr Jói.
"Nei."
"Þú
ert hommi er það ekki?"
|