|
1996-2000
Farið var í
Ítalíuferð 7. júní-18. júní
1996.
Haustið 1996 hófst
undirbúningar fyrir 30 ára afmæli kórsins
14. febrúar 1997. Halda skyldi veglega tónleika
að þessu tilefni og bjóða öðrum
kórum að vera með. Haft var samband við gamla
félaga og stjórnendur. Ágúst Ágústsson
eiginmaður Hrefnu Sigfúsdóttur kórfélaga
hannaði nýtt merki fyrir kórinn og var samþykkt
að nota það í fyrsta sinn á afmælistónleikunum.
Afmælistónleikarnir
voru haldnir 15. febrúar 1997 í Langholtskirkju
og heppnuðust sérstaklega vel. Kórarnir sem
komu fram ásamt Árnesingkórnum voru: Selkórinn,
Kór Kvennaskólans í Reykjavík, Karlakórinn
Fóstbræður og Skólakór Kársness.
Fullt hús var á tónleikunum og voru meðal
gesta fyrri stjórnendur kórsins. Um kvöldið
var árshátíð og meðal gesta voru
þrír fyrrverandi stjórnendur kórsins:
Þuríður Pálsdóttir, Guðmundur
Ómar Óskarsson og Hlín Torfadóttir.
Þau stjórnuðu hver um sig einu lagi í
tilefni dagsins.
Þann
11. mars var sjötugsafmæli Þuríðar
Pálsdóttur og veittist kórnum sá heiður
að vera þátttakandi í hátíðartónleikum
sem haldnir voru í Þjóðleikhúsinu
að því tilefni. Þarna var farið yfir
feril Þuríðar í tónlistarlífinu
og komu margir nemendur hennar fram. Má segja að þarna
hafi verið nokkurskonar uppskeruhátíð þessarar
frábæru söngkonu.
|