|
1971-1975
Haldið var til Færeyja
í vikuferð 1. júní 1971.
Kórstarfið fór
hægt af stað eftir ferðina til Færeyja þannig
að ákveðið var að hefja ekki æfingar
fyrr en eftir áramót 1972.
Þorrablót
var haldið 24. febrúar 1973. Þar kom fram í
fyrsta skipti sextettinn "Nokkuð stór" en í
honum voru: Jóhanna Guðmundsdóttir, Kristín
Ólafsdóttir, Herdís P. Pálsdóttir,
Guðrún E. Guðmundsdóttir, Ingibjörg
S. Guðmundsdóttir, Hjördís Geirsdóttir,
Úlfhildur Geirsdóttir og stjórnandi Björn
Ó. Björgvinsson. Konurnar komu fram í herrafötum
með þverslaufur og pípuhatta. Þetta atriði
vakti geysimikla athygli og kátínu.
Þann 6. apríl
var haldin skemmtun að Flúðum í Hrunamannahreppi.
Sextettinn "Nokkuð stór" kom fram og þar á
eftir fjórir herrar í kvenmannsfötum með
hárkollur og sungu nokkur lög. Þeir voru: Sveinn
Guðmundsson, Þórður Guðmundsson, Óskar
Sigurgeirsson og Ólafur Sigurðsson. Dansað var
fram eftir nóttu og á heimleið var komið
við í Hruna þar sem sr. Sveinbjörn Sveinbjörnsson
og Alma Ásbjarnardóttir buðu upp á staup,
kaffi og smurt brauð og var það kærkomin hressing.
Þann 24. september
1973 var haldinn fundur með fulltrúum Árnesingafélagsins
í Reykjavík og var ákveðið að
gefa út hljómplötu í samvinnu við
félagið. Hljómplatan átti eingöngu
að innihalda lög eftir Árnesinga. Fulltrúar
Árnesingafélagsins töldu að félagið
gæti lánað nokkurt fé til útgáfu
þessarar eða ábyrgst bankalán ef á
þyrfti að halda. Upptökur fóru fram í
Hallgrímskirkju. Eitt lag var þó tekið
upp í kirkju Fíladelfíusafnaðarins. Upptökum
lauk í júní 1974 og platan var gefin út
í byrjun nóvember sama ár.
Þess má geta
að þetta var fyrsta hljómplatan með blönduðum
kór sem tekin var upp í stereo á Íslandi.
Sigurður Ágústsson
stjórnaði kórnum 1974-1975.
|